Tónaflóð í Grafarvogi. Það verður líf og fjör í kvöld þegar úrslitakvöld Söngvakeppninnar 2025 fer fram í kvikmyndaveri RVK Studios í Gufnesi og verður í beinni á RÚV klukkan 19:45. Sex lög keppa til úrslita. Á vef RÚV segir að Herra Hnetusmjör opni úrslitakvöldið og þá munu Käärjaa og Hera Björk stíga á svið. Kynnarnir þrír verða sem fyrr: Guðrún Dís Emilsdóttir, Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson. Meðfylgjandi mynd af þeim er fengin af vef RÚV og merkt Ragnari Visage.
Lögin sem keppa til úrslita eru:
1. Like You – Ágúst.
2. Aðeins lengur – Bjarni Arason.
3. Fire – Júlí og Dísa.
4. RÓA – VÆB.
5. Words – Tinna.
6. Set Me Free – Stebbi Jak.
Kosningafyrirkomulagið er með breyttu sniði í ár. Það verður ein símakosning sem mun vega helming á móti atkvæðum alþjóðlegrar dómnefndar. Síðustu ár hefur einvígi milli tveggja efstu laga ráðið úrslitum.
Käärijä treður upp
Úrslitakvöldið verður viðburðaríkt og boðið verður upp á ýmis skemmtiatriði auk laganna sex sem keppa. Finnski Eurovision söngvarinn Käärijä, sem lenti í 2. sæti í Eurovision 2023 með lagið Cha Cha Cha, kemur fram ásamt sænsku sveitinni Hooja.
Herra Hnetusmjör mun opna kvöldið með vinsælasta laginu á Íslandi í dag og Hera Björk, sigurvegari Söngvakeppninnar í fyrra, syngur á sviðinu áður en hún afhendir verðlaunagripinn til sigurvegara kvöldsins.
Úrslit Söngvakeppninnar hefst í beinni útsendingu á RÚV í kvöld klukkan 19:45 og munu þá Gunnar Birgisson og Edda Sif Pálsdóttir fara yfir stemninguna fyrir keppnina með góðum gestum. Í lok kvöldsins verður ljóst hver verður fulltrúi Íslands í Eurovision í Basel í maí.
Höfundar þriggja laga hafa ákveðið að flytja lag sitt á ensku, tvö verða áfram flutt á íslensku og eitt á bæði íslensku og ensku.
ALÞJÓÐLEGA DÓMNEFNDIN ÞANNIG SKIPUÐ
Sietse Bakker, yfirframleiðandi Eurovision 2021 - Holland
Niamh Kavanagh, söngkona og sigurvegari Eurovision 1993 - Írland
Ersin Parlak, tónlistarumboðsmaður og fjölmiðlafulltrúi í Eurovision - Tyrkland
Saba, söngkona í Eurovision 2024 - Danmörk
Peter Fenner, Eurovision-sérfræðingur - England
Maria Sur, söngkona í Melodifestivalen 2024 - Úkraína
Damir Kedžo, Eurovision-söngvari – Króatía
Kl. 18:20. Gestir streyma að í Gufunesinu og þegar komin biðröð næstum einum og hálfum tíma fyrir útsendingu RÚV.