Skáksveit Rimaskóla keppir á Norðurlandamóti í Finnlandi næsta haust

30. mars 2025
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button

TIL HAMINGJU.  Skáksveit Rimaskóla keppir á Norðurlandamóti skáksveita barnaskóla í Finnlandi í september nk. haust eftir að hafa sigrað á Íslandsmóti barnaskólasveita árið 2025.


Þetta var fjölmennasta Íslandsmót barnaskólasveita til þessa og var haldið í Rimaskóla á dögunum. Alls settust 160 krakkar að tafli í íþróttahúsi skólans og áhuginn skein úr andliti allra. Þetta var hörkukeppni.



Myndin hér að ofan er af A-sveit Rimaskóla, Íslandsmeisturunum 2025. Frá vinstri. Sigrún Tara, Emilía Embla, Emilía S. og Tristan Fannar.

Mikið óskaplega getum við Grafarvogsbúar annars verið stoltir af skákáhuganum í hverfinu en þar hefur
Helgi Árnason, fyrrum skólastjóri í Rimaskóla, unnið algert þrekvirki við að halda utan um starfið til margra ára. Hann er formaður skákdeildar Fjölnis.


Rimaskólakrakkar fóru á algjörum kostum í mótinu. A-sveit skólans varð Íslandsmeistari 2025 eftir glæsilegan sigur í æsispennandi skákmóti.


Tefldar voru 8 umferðir. Rimaskólakrakkar náðu forystu eftir 6 umferðir, bættu í og fengu 7 vinninga úr 8 síðustu skákunum. Allar Rimaskólasveitirnar komust á verðlaunapall og allir æfa krakkarnir Skákdeild Fjölnis; Íslandsmeisturum félagsliða. 


Það verður A-sveit skólans sem teflir á Norðurlandamótinu í Finnlandi í september. 

Úrslitin urðu annars þessi:


A-sveit Rimaskóla - Íslandsmeistarar 2025

B-sveit Rimaskóla - 1. sæti B-sveita.

C-sveit Rimaskóla - 1. sæti C-sveita.

D-sveit Rimaskóla - 1. sæti D- sveita.


(Erum því miður ekki með mynd af B-sveitinni).

Besta C sveitin : Rökkvi, Jóhann Jakob, Anh og Óskar Daníel

Besta D sveitin. Alexander F. , Alexander K. , Erlendur, Benedikt og Þóra. Bekkjarsystkini í Rimaskóla.

Íslandsmeistarabikarinn í höfn. Frá vinstri: Jóhanna, varaforseti Skáksambands ÍslandsÍ, Emilía S. , Sigrún Tara, Emilía Embla, Tristan Fannar og Helgi Árnason liðsstjóri.

Share by: