Hún hefur vakið athygli færsla Þóreyjar Gylfadóttur á FB þar sem hún fjallar um blokkirnar sem troða á niður nánast með skóhorni við hringtorg golfvallarins við Korpu - ef nýja tillögur um þéttingu byggðar í Grafarvogi verða að veruleika. Það virðist hvergi hægt að sjá auðan blett án þess borgin fari ekki í þéttingargírinn.
Sumir tala um að teikniblokkir séu farnar að fá nýja merkingu og að ef sést autt svæði í Grafarvogi er náð í teikniblokkir og byrjað að teikna blokkir.
Staðið á planinu við bláu sjoppuna og bletturinn góði þar sem byggja á blokkir með 18 íbúðum blasir við.
Þrengt er mjög að hringtorginu með þessum íbúðum.
Þessi mynd er frá Þóreyju.
Brúnu húsin þarna fyrir ofan hringtorgið fá blokkir alveg ofan í sig. Um leið minnkar útsýnið um svæðið fyrir ökumenn sem aka þarna um.
Teikniblokkir eru farnar að fá nýja merkingu. Um leið og sést autt svæði í Grafarvogi er náð í teikniblokk og blokkir teiknaðar.