Úlfur þjálfari meistaraflokks Fjölnis hættir óvænt með liðið

11. febrúar 2025
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button

ÍÞRÓTTIR - FJÖLNIR. Fjölnir hefur rift ráðningarsamningi Úlfs Arnars Jökulssonar, þjálfara Lengjudeildarliðs félagsins. Úlfur hefur þjálfað liðið frá hausti 2021. Á þeim tíma hefur liðið í tvígang komist í umspil um sæti í Bestu deild. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Fjölni.


Björgvin Jón Bjarnason, Formaður knattspyrnudeildar Fjölnis: „Við viljum þakka Úlla áralangt samstarf. Undir hans stjórn hefur fjöldi ungra pilta úr Grafarvogi fengið tækifæri með meistaraflokki félagsins. Þá hefur árangur liðsins verði með ágætum. Honum fylgja bestu óskir um gæfu í því sem hann tekur sér fyrir hendur.“


Úlfur Arnar Jökulsson: „Ég vil þakka öllum leikmönnum, þjálfarateymi og öðrum sem hafa verið hluti af þessu verkefni fyrir frábært samstarf. Mér hefur þótt heiður að vinna með þessum hópi, og ég er stoltur af þeirri vegferð sem við höfum verið á saman, sérstaklega með ungu leikmennina sem hafa vaxið og þróast innan félagsins. Ég óska Fjölni alls hins besta í framtíðinni og hlakka til næstu áskorana á mínum þjálfaraferli.“


Share by: